Vorferð

Þann 24-25 maí fór ég og bekkurinn minn í ferð til Vestmannaeyja. Við byrjuðum á því að hittast í skólanum og fórum svo í rútu. Við stoppuðum í Selvogi og fórum í kirkjuna þar. Þá sagði Sigga Mæja okkur sögur um kirkjuna og Selvogin og að það væri hægt að kalla á seli niður við fjöruna og að það mættu allir prófa ef þeir vildu. Við stoppuðum hjá Seljalandsfoss til að fá okkur nesti og héldum svo áfram. Eftir að keyra í nokkurn tíma fórum við í Herjólf og fórum til Vestmannaeyja. Í bátnum var mikill öldugangur og það var eins og við vorum í klukkutíma á leiðinni en við vorum bara 35-40 mínútur. Þegar við komum til Vestmannaeyja fórum við í skátaheimilið þar sem við gistum og komum okkur fyrir. Eftir það skoðuðum við slóðir frá Tyrkjaráninu og sáum mjög flottan klett sem leit út eins og fílahaus,  svo fórum við á safn sem er um eldgosið sem var í Vestmannaeyjum árið 1973 og það heitir Eldheimar, svo fórum við aftur í skátaheimilið og fengum okkur að borða.

flahauseldgoss í Vestmannaeyjum

Þegar við vorum búin að borða fórum við í sund í mjög skemmtilegri sundlaug.

sund-i-eyjumo_1b8q6ihf217n11mc5g3v11dp17f0j

 Næsta dag var húsið þrifi. Okkur var skipt í tvo hópa og annar hópurinn fór að spranga á meðan hinn fór á hoppudýnuna. Þegar við vorum bún að því fórum við heim. Mér fannst mjög gaman í þessari ferð. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband